Vísindakaffi 2023


Mánudagur 25. september kl: 20:00 til 21:30.

Staður: Bókasamlagið Skipholti 19.
Geta tölvur skapað? Spjall um skapandi gervigreind. Hvað er að gerast í skapandi gervigreind? Eru tölvur farnar að semja ljóð, tónlist og myndlist? Eða eru þetta sálarlausar eftirlíkingar byggðar af statistík sem aldrei væri hægt að kalla list? Fyrsti gestur vísindakaffi Rannís er Þórhallur Magnússon rannsóknarprófessor við Listaháskóla Íslands og prófessor í framtíðartónlist við University of Sussex í Bretlandi. Hann stýrir verkefninu Intelligent Instruments sem er styrkt af Evrópska rannsóknarráðinu og hýst við LHÍ.

Þriðjudagur 26. september kl: 20:00 til 21:30.

Staður: Bókasamlagið Skipholti 19.
Heilahreysti alla ævi: Hvað getur þú gert? Heilahreysti er nátengd líkamlegri hreysti og grunnur er lagður að heilahreysti strax við fæðingu. Með hækkandi aldri aukast líkur á heilabilunarsjúkdómum, svo sem Alzheimer. Margir aðrir áhættuþættir heilabilunar eru þekktir. Þar má nefna hreyfingarleysi, háan blóðþrýsting og síendurtekin höfuðhögg. Einnig þekkjum við marga lífsstílsþætti sem eru verndandi. Einn þessara þátta er menntun. María Kristín Jónsdóttir taugasálfræðingur mun fjalla vítt og breitt um þetta efni.

María K. Jónsdóttir, Ph.D., er prófessor í sálfræðideild Háskólans í Reykjavík og sérfræðingur í klínískri taugasálfræði á minnimóttöku Landakots.

Miðvikudagur 27. september kl: 20:00 til 21:30.

Staður: Bókasamlagið Skipholti 19.
Dulin virkni Eurovision. Hvernig nota lítil ríki og stór, veikburða ríki, Eurovision til að bæta ímynd sína? Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og rannsóknastjóri Rannsóknaseturs um smáríki og Hera Melgar Aðalheiðardóttir MA í alþjóðasamskiptum fjalla um dulda virkni Eurovision og hvernig mjúku valdi og landkynningu er beitt til pólitísks ávinnings. Hvað er „veikt ríki"? Segja söngatriðin í Eurovision eitthvað um löndin sjálf? Hefur viljinn til að koma löndum á framfæri eitthvað með stærð þeirra að gera?

Vísindakaffi á landsbyggðinni 2023:

Fimmtudagur 28. september kl. 20:00.

Staður: Sauðfjársetrið í Sævangi.
Á þjóðsagnaslóðum á Norður-Ströndum. Rannsóknasetur HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofa stendur fyrir Vísindakaffi þar sem þjóðfræðingarnir Jón Jónsson, Matthias Egeler, Saskia Klose og Dagrún Ósk Jónsdóttir segja frá fimm daga vettvangsferð sinni á tveimur jafnfljótum, norðan byggðar á Ströndum sumarið 2023. Leiðangurinn var farinn til að leita uppi þjóðsagnastaði og kanna örnefni og landslag á leiðinni frá Reykjarfirði nyrðri að Dröngum. Sýndar verða myndir og sagt frá álfhömrum, dvergasteinum, tröllkerlingum, fornmannahaugum og útilegumannabæli sem heimsótt voru í gönguferðinni. Rannís býður gestum upp á vísindakaffi og kleinur.

Fimmtudagur 29. september kl. 17:00.

Staður: Rannsóknasetur HÍ Gamla kaupfélaginu Breiðdalsvík.
Jarðargæði – frá bújörðum til háfjalla.
Í tengslum við Vísindavöku Rannís býður Rannsóknasetur HÍ á Breiðdalsvík í Vísindakaffi í Gamla kaupfélaginu. Sigurður Max Jónsson, búfræðingur og bóndi á Skjöldólfsstöðum í Breiðdal, segir frá meistararannsókn sinni á plöntunæringarefnum í ræktunarjarðvegi. Einnig segir María Helga Guðmundsdóttir, jarðfræðingur við Rannsóknasetur HÍ á Breiðdalsvík og Náttúrufræðistofnun Íslands, frá vettvangsferðum sínum og aðferðum við jarðfræðikortlagningu á Austurlandi. Rannís býður gestum upp á vísindakaffi og kleinur.







Þetta vefsvæði byggir á Eplica