Friðrika Björk Þorkelsdóttir, sérfræðingur í notendaprófunum á sviði stoðtækja hjá Össur, segja gestum frá rannsóknum tengdum stoðtækja á borð við gervifætur.
Vísindakakó er viðburður fyrir forvitna krakka sem vilja eiga beint samtal við vísindafólk, heyra hvað það er að rannsaka og hvernig það er að starfa í vísindum.
Á vísindakakó gefst gestum tækifæri á að hitta aðila úr vísindasamfélaginu í óformlegu spjalli um þær vísindarannsóknir sem viðkomandi leggur stund á og ekki síst fá að spyrja ótal spurninga um allt það sem við kemur því að starfa við rannsóknir og vísindi.
Laugardaginn 8. mars mun Friðrika Björk Þorkelsdóttir, sérfræðingur í notendaprófunum á sviði stoðtækja hjá Össur, segja gestum frá rannsóknum tengdum stoðtækja á borð við gervifætur.
Gert er ráð fyrir að viðburðurinn sé um ein klukkustund og að sjálfsögðu verður boðið upp á kakó og kleinur á meðan birgðir endast.
Vakin er athygli á því að Vísindakakó verður haldin alls tíu sinnum í vetur á mismunandi bókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu.
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin