Vísindakakó fyrir forvitna krakka á Bókasafni Mosfellsbæjar

18.3.2025

Laugardaginn 29. mars mun Sveinn Þorgeirsson, háskólakennari við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík ræða við gesti um rannsóknir og vísindi á sviði íþrótta.

  • Visindakako-Bokasafn-Mosfellsbaejar_1742291325019

Vísindakakó er viðburður fyrir forvitna krakka sem vilja eiga beint samtal við vísindafólk, heyra hvað það er að rannsaka og hvernig það er að starfa í vísindum.

Á vísindakakó gefst gestum tækifæri á að hitta aðila úr vísindasamfélaginu í óformlegu spjalli um þær vísindarannsóknir sem viðkomandi leggur stund á og ekki síst fá að spyrja ótal spurninga um allt það sem við kemur því að starfa við rannsóknir og vísindi.

Laugardaginn 29. mars mun dr. Sveinn Þorgeirsson, háskólakennari og umsjónarmaður rannsóknarstofu íþróttafræðinnar í HR fjalla um líkamlegar frammistöðumælingar á íþróttafólki og almenningi. Af hverju er snjallt að gera mælingar og hvernig notum við niðurstöðurnar?

Gert er ráð fyrir að viðburðurinn sé um ein klukkustund og að sjálfsögðu verður boðið upp á kakó og kleinur á meðan birgðir endast.

Vakin er athygli á því að Vísindakakó verður haldin alls tíu sinnum í vetur á mismunandi bókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu.

Dagskráin í vetur

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin

Facebook viðburður







Þetta vefsvæði byggir á Eplica