Vísindakakó fyrir forvitna krakka á Bókasafni Kópavogs 16. nóvember

11.11.2024

Vísindakakó er viðburður fyrir forvitna krakka sem vilja eiga beint samtal við vísindafólk, heyra hvað það er að rannsaka og hvernig það er að starfa í vísindum.

  • Visindakako-Bokasafn-Kopavogs-16.11.24

Á vísindakakó gefst gestum tækifæri á að hitta aðila úr vísindasamfélaginu í óformlegu spjalli um þær vísindarannsóknir sem viðkomandi leggur stund á og ekki síst fá að spyrja ótal spurninga um allt það sem við kemur því að starfa við rannsóknir og vísindi.

Laugardaginn 16. nóvember verður það Dr. Erna Magnúsdóttir, dósent við læknadeild Háskóla Íslands, sem mun segja gestum frá rannsóknum og vísindastörfum sínum á sviði læknavísinda.

Gert er ráð fyrir að viðburðurinn sé um ein klukkustund og að sjálfsögðu verður boðið upp á kakó og kleinur á meðan birgðir endast.

Vakin er athygli á því að Vísindakakó verður haldin alls tíu sinnum í vetur á mismunandi bókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu.

Dagskráin í vetur

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin

Facebook viðburður







Þetta vefsvæði byggir á Eplica