Dr. Margrét Helga Ögmundsdóttir ræðir við gesti um rannsóknir sínar sem prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands.
Vísindakakó er viðburður fyrir forvitna krakka sem vilja eiga beint samtal við vísindafólk, heyra hvað það er að rannsaka og hvernig það er að starfa í vísindum.
Á vísindakakó gefst gestum tækifæri á að hitta aðila úr vísindasamfélaginu í óformlegu spjalli um þær vísindarannsóknir sem viðkomandi leggur stund á og ekki síst fá að spyrja ótal spurninga um allt það sem við kemur því að starfa við rannsóknir og vísindi.
Laugardaginn 15. febrúar mun Dr. Margrét Helga Ögmundsdóttir ræða við gesti um rannsóknir sínar sem prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands.
Gert er ráð fyrir að viðburðurinn sé um ein klukkustund og að sjálfsögðu verður boðið upp á kakó og kleinur á meðan birgðir endast.
Vakin er athygli á því að Vísindakakó verður haldin alls tíu sinnum í vetur á mismunandi bókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu.
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin