Vísindakakó fyrir forvitna krakka á Amtsbókasafninu á Akureyri 8. mars

Helena Sigurðardóttir, kennsluráðgjafi hjá Háskólanum á Akureyri ræðir við gesti um gervigreind og tæknileg tækifæri

25.2.2025

  • Visindakako-Amtsbokasafnid-a-Akureyri

Vísindakakó er viðburður fyrir forvitna krakka sem vilja eiga beint samtal við vísindafólk, heyra hvað það er að rannsaka og hvernig það er að starfa í vísindum.

Á vísindakakó gefst gestum tækifæri á að hitta aðila úr vísindasamfélaginu í óformlegu spjalli um þær vísindarannsóknir sem viðkomandi leggur stund á og ekki síst fá að spyrja ótal spurninga um allt það sem við kemur því að starfa við rannsóknir og vísindi.

Laugardaginn 8. mars mun Helena Sigurðardóttir, kennsluráðgjafi hjá Háskólanum á Akureyri, ræða við gesti um gervigreind og tæknileg tækifæri

Gert er ráð fyrir að viðburðurinn sé um ein klukkustund og að sjálfsögðu verður boðið upp á kakó og kleinur á meðan birgðir endast.

Vakin er athygli á því að Vísindakakó verður haldin alls tíu sinnum í vetur á mismunandi bókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu.

Dagskráin í vetur

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin

Facebook viðburður







Þetta vefsvæði byggir á Eplica