Til hamingju með daginn vísindafólk!

28.9.2024

Heill heimur vísinda í dag 28. september kl. 13:00 -18:00 á Vísindavöku í Laugardalshöllinni. Á Vísindavöku, sannkallaðri uppskeruhátíð vísindanna í íslensku samfélagi, gefst gestum kostur á að hitta og ræða við okkar fremsta vísindafólk og kynnast mikilvægi rannsókna- og vísindastarfs í nútímasamfélagi. 

  • Vi-usindavaka-2023-2

Finnst þér gaman að fikta og prófa alls konar hluti og fræðast um hvernig hlutirnir virka? Viltu sjá hversu hratt þú getur hlaupið og skipt um stefnu, sitja í formúlubíl, sjá Ísland úr lofti, kynna þér hvort fiskar verða veikir, teikna á tölvu, kynna þér gervigreind, sjá lífið í sjónum með berum augum, hitta lifandi maura, virða fyrir þér sebrafiska, sjá höfuðlús eða koma með veikan bangsa á hinn sívinsæla bangsaspítala?

Þá skaltu koma á Vísindavökuna þar sem þú getur hitt okkar fremsta vísindafólk!

Vísindavakan hefst kl. 13:00 með afhendingu viðurkenningar Rannís fyrir vísindamiðlun. Sprengju-Kata mun svo sprengja Vísindavökuna í gang! Að setningu lokinni opnar sýningarsvæðið með lifandi vísindamiðlun þar sem gestir geta fundið eitthvað fróðlegt og skemmtilegt fyrir alla aldurshópa.

Dagskrá Vísindavöku

Heill heimur vísinda!

Á Vísindavöku stendur almenningi til boða sannkölluð vísindaveisla þar sem okkar fremsta vísindafólk sýnir og segir frá rannsóknum og nýsköpun á lifandi og gagnvirkan hátt.
Gestir fá að skoða og prófa ýmis tæki og tól sem notuð eru við rannsóknir, kynnast ýmsum afurðum og spjalla við vísindafólkið sjálft um hvernig er að starfa að vísindum, rannsóknum og nýsköpun. Lögð er áhersla á lifandi vísindamiðlun og virka þátttöku gesta og eru börn og ungmenni sérstaklega boðin velkomin á Vísindavöku.

Skoða sýnendur







Þetta vefsvæði byggir á Eplica