Viðurkenning Rannís fyrir framúrskarandi vísindamiðlun verður afhent við opnun Vísindavöku sem haldin verður í Laugardalshöllinni laugardaginn 27. september 2025.
Viðurkenning fyrir vísindamiðlun er veitt einstaklingi, stofnun, skóla, fyrirtæki, samtökum eða verkefni, sem þykir hafa staðið ötullega að því að miðla vísindum og fræðum til almennings á áhugaverðan hátt.
Tilnefningu skal fylgja haldgóður rökstuðningur og dæmi um vel heppnaða vísindamiðlun yfir síðastliðið/n ár.
Til að hljóta viðurkenningu fyrir vísindamiðlun, skal hún hafa stuðlað að bættum skilningi almennings, barna, ungmenna og fullorðinna, á vísindum og fræðum og á mikilvægi þeirra fyrir íslenskt samfélag. Einnig skal vísindamiðlunin hafa vakið athygli á starfi vísindafólks og á mikilvægi rannsókna og nýsköpunar í íslensku samfélagi.
Hægt er að senda inn tilnefningu með því að fylla út skráningarformið hér fyrir neðaH