Hverjar verða brýnustu samfélagslegar áskoranir Íslands í framtíðinni? Taktu þátt!

24.9.2018

Vísinda- og tækniráð Íslands efnir til opins samráðs við almenning og hagsmunaaðila um skilgreiningu þeirra framtíðaráskorana sem vísindi og rannsóknir ættu markvisst að takast á við. Hægt er að taka þátt í samráðinu hér en einnig verður hægt að taka þátt á Vísindavöku Rannís.

  • Sflaskor

Markmið samráðins er að fá fram fjölbreytt sjónarmið og ábendingar sem geta eflt forgangsröðun fjárfestinga í rannsóknum og nýsköpun hér á landi. Á grundvelli gagna úr samráðinu verða skilgreind þrjú til fimm áherslusvið og þverfaglegt samstarf innan þeirra eflt með þátttöku háskóla, rannsóknarstofnana og fyrirtækja.

Vísinda- og tækniráð hvetur öll áhugasöm til að taka þátt með því að svara stuttri netkönnun á síðunni www.samfelagslegaraskoranir.is fyrir 7. október og setja þannig mark sitt á framtíðina.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður vísinda- og tækniráðs segir á vefsíðu ráðuneytisins:

„Við stöndum frammi fyrir ýmsum hnattrænum áskorunum þegar kemur að umhverfis- og loftslagsmálum og heilsu-, orku- og öryggismálum svo dæmi séu tekin. Sömuleiðis hlýt ég að nefna þá tæknibyltingu sem við stöndum frammi fyrir. Þátttaka alls almennings er lykilatriði til að samfélaginu farnist sem best í að mæta þessum áskorunum.“

Vísinda- og tækniráð mótar opinbera stefnu í vísindum og tækni á Íslandi og hefur það hlutverk að efla vísindarannsóknir, vísindamenntun og tækniþróun í því skyni að treysta stoðir íslensks samfélags. Í stefnu Vísinda- og tækniráðs fyrir árin 2017-2019 er kveðið á um mikilvægi þess að niðurstöður vísindastarfs, nýsköpun og tækni nýtist öllu samfélaginu og að stuðla þurfi að skilningi og áhuga almennings á rannsóknum og nýsköpun. 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica