Fjársjóður framtíðar hlýtur viðurkenningu fyrir vísindamiðlun 2018

29.9.2018

Sjónvarpsþáttaröðin Fjársjóður framtíðar hlaut viðurkenningu Rannís 2018 fyrir vísindamiðlun, en þættirnir eru framleiddir af Háskóla Íslands fyrir RÚV. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra afhenti viðurkenninguna við opnun Vísindavöku 2018 í Laugardalshöll föstudaginn 28. september.

  • Vísindamiðlunarverðlaun Rannís 2018

Fjársjóður framtíðar er langviðamesta verkefnið sem Háskóli Íslands hefur tekist á hendur til að miðla vísindum til almennings en skólinn leggur mikla áherslu á að miðla rannsóknum og mikilvægi vísinda og nýsköpunar til samfélagsins. Þáttaröðin hefur verið fastur liður í dagskrá RÚV frá árinu 2011 og hefur verið sýnd á Norðurlöndunum auk þess að keppa um gullverðlaun á einni elstu og virtustu vísindakvikmyndahátíð í Evrópu. 

Á myndinni má sjá forsvarsmenn þáttanna innan HÍ ásamt Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra og Hallgrími Jónassyni forstöðumanni Rannís.

Markmið með þáttaröðinni um Fjársjóð framtíðar er að auka áhuga og þekkingu almennings á öllum aldri á vísindum og nýsköpun og að landsmenn skynji og skilji mikilvægi þessara þátta fyrir velferð samfélagsins.

Í takt við áherslu Vísindavöku Rannís, þá er vísindafólkið sjálft í forgrunni í þáttunum, þar sem það miðlar rannsóknum sínum til almennings.

Óhætt er að segja að þættirnir hafi frá upphafi vakið gríðarlega athygli og að sú athygli hafi náði langt út fyrir landsteina.  Þættirnir hafa verið kynntir sem einstakt verkefni í vísindamiðlun á Evrópuráðstefnu bandalags háskóla og æðri menntastofnanna, á árvissri ráðstefnu EUPRIO, sem er félag samskiptafólks í evrópskum háskólum, á ráðstefnu UNICA, sem er samstarfsnet háskóla í evrópskum höfuðborgum, svo fátt eitt sé talið.







Þetta vefsvæði byggir á Eplica