Vísindakaffi á landsbyggðinni

Í tengslum við Vísindavöku Rannís verða vísindakaffi víða um land. Kynntu þér dagskrána hér að neðan.

Teiknuð fígúra heldur á kaffi
Fimmtudagur 28. september kl. 20:00.

Staður: Sauðfjársetrið í Sævangi.
Á þjóðsagnaslóðum á Norður-Ströndum.  Rannsóknasetur HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofa stendur fyrir Vísindakaffi þar sem þjóðfræðingarnir Jón Jónsson, Matthias Egeler, Saskia Klose og Dagrún Ósk Jónsdóttir segja frá fimm daga vettvangsferð sinni á tveimur jafnfljótum, norðan byggðar á Ströndum sumarið 2023. Leiðangurinn var farinn til að leita uppi þjóðsagnastaði og kanna örnefni og landslag á leiðinni frá Reykjarfirði nyrðri að Dröngum. Sýndar verða myndir og sagt frá álfhömrum, dvergasteinum, tröllkerlingum, fornmannahaugum og útilegumannabæli sem heimsótt voru í gönguferðinni. Rannís býður gestum upp á vísindakaffi og kleinur.

Fimmtudagur 29. september kl. 17:00.

Staður: Rannsóknasetur HÍ Gamla kaupfélaginu Breiðdalsvík.
Jarðargæði – frá bújörðum til háfjalla
Í tengslum við Vísindavöku Rannís býður Rannsóknasetur HÍ á Breiðdalsvík í Vísindakaffi í Gamla kaupfélaginu. Sigurður Max Jónsson, búfræðingur og bóndi á Skjöldólfsstöðum í Breiðdal, segir frá meistararannsókn sinni á plöntunæringarefnum í ræktunarjarðvegi. Einnig segir María Helga Guðmundsdóttir, jarðfræðingur við Rannsóknasetur HÍ á Breiðdalsvík og Náttúrufræðistofnun Íslands, frá vettvangsferðum sínum og aðferðum við jarðfræðikortlagningu á Austurlandi. Rannís býður gestum upp á vísindakaffi og kleinur.






Þetta vefsvæði byggir á Eplica