Viðurkenning fyrir vísindamiðlun - óskað eftir tilnefningum

5.9.2022

Viðurkenning Rannís fyrir vísindamiðlun verður veitt á Vísindavöku 2022 sem haldin verður í Laugardalshöll laugardaginn 1. október. Viðurkenningin verður afhent við opnun Vísindavöku kl. 13:00.

Viðurkenning fyrir vísindamiðlun er veitt einstaklingi, stofnun, fyrirtæki, samtökum eða verkefni, sem þykir hafa staðið ötullega að því að miðla vísindum og fræðum til almennings á áhugaverðan hátt.

Tilnefningar sendist í tölvupósti til Rannís í síðasta lagi 23. september nk. í netfangið visindavaka@rannis.is. Tilnefningu skal fylgja haldgóður rökstuðningur og dæmi um vel heppnaða vísindamiðlun yfir síðastliðið/n ár.

Á myndinni eru f.v.: Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís, Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra sem afhenti viðurkenninguna, Árni Snorrason forstjóri Veðurstofu Íslands, en Veðurstofan hlaut viðurkenninguna fyrir miðlun upplýsinga um hvers kyns náttúruvá, og Sævar Helgi Bragason fyrir að miðla vísindum til almennings á fjölbreyttan hátt, með sérstakri áherslu á að ná til barna og ungmenna.

Til að hljóta viðurkenningu fyrir vísindamiðlun, skal hún hafa stuðlað að bættum skilningi almennings, barna, ungmenna og fullorðinna, á vísindum og fræðum og á mikilvægi þeirra fyrir íslenskt samfélag. Einnig skal vísindamiðlunin hafa vakið athygli á starfi vísindamanna og á mikilvægi rannsókna og nýsköpunar í íslensku samfélagi.

Fyrri handhafar viðurkenningarinnar







Þetta vefsvæði byggir á Eplica